Vegna versnandi veðurs fellur allur akstur niður í dag. Þó verða farnar skólaferðir klukkan 13:30 og 14:00 í Holtahverfi og Hnífsdal.
Vegna versnandi veðurs er akstri frístundarútunnar aflýst í dag.
Öllum ferðum á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri er aflýst í dag. Akstur frístundarútu og akstur innanbæjar er samkvæmt áætlun á meðan veður og færð leyfir.
Vegna veðurs og færðar er ferð frá Ísafirði til Suðureyrar klukkan 06:30 aflýst, þar af leiðandi fellur ferðin til baka niður klukkan 07:25
Ferð frá Þingeyri klukkan 06:55 er aflýst vegna veðurs og færðar, þar af leiðandi fellur niður ferð frá Flateyri klukkan 07:25
Akstri er hætt á Suðureyri í dag þar sem vagninn þurfti frá að hverfa í síðustu ferð.
Akstur frístundarútu verður hætt klukkan 16:00 vegna versnandi veðurs.
Vegna slæmrar veðurspár þá er síðasta ferð til Þingeyrar og Flateyrar klukkan 13:00. Engin ferð verður til baka frá Þingeyri. Allar aðrar ferðir innanbæjar eru samkvæmt áætlun á meðan veður leyfir.
Allur akstur á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri fellur niður í dag vegna veðurs og ófærðar. Akstur innanbæjar á Ísafirði er samkvæmt áætlun. Akstur frístundarútu byrjar klukkan 14:00 og verður ekið á meðan veður leyfir.
Allur akstur liggur niðri fyrir hádegi. Eftir hádegi verður akstur skólabíla samkvæmt áætlun. Ferðir á Þingeyri og akstur frístundarútu verður skoðaður klukkan 12:00. Ferðir á Suðureyri verða skoðaðar klukkan 15:00.
|
Dagsetningar
March 2024
|